Já er eitthvað svo
eirðarlaus þennan fimmtudag. Veit ekki hvað ég á að gera af mér.
Nenni ekki neinu þó að það bíði mann ritgerðarvinna í sögu sem
ég er ekki að nenna að gera. Hef komist að því að ég er oft mjög
latur maður þegar að gera þarf ritgerð. Svakalegur góður dagur
búinn að vera, fékk útur söguprófi og vá ég verð hreinlega að
taka mig saman í andlitinu ef ég á að ná þessum áfanga
Jón
Árni vildi meina að sumir mættu bara í tíma afslappaðir alla
daga og héldu að þeir þyrftu ekkert að gera til að ná þessum
áfanga. Já ok ég skal viðurkenna það að ég hef ekki verið eins
duglegur í þessum áfanga eins og ég ætlaði mér að vera. En jæja
ok núna verður maður að fara herða sig betur enda bara eftir 3
vikur af skólanum.
En já Skallagrímur vann Tindastól í gærkveldi og var
þetta alveg hörkuleikur. Var þetta bara nokkuð jafn leikur allan
tíman nema í 4. leikhluta en þá voru Tindastólsmenn orðnir þreyttir
og Skallagrímur kláraði þetta. Var nú einn kani í Tindastólsliðinu
sem var alveg rosalega góður, vá boltatæknin hjá honum var alveg
geðveikt flott og svo var hann líka mjög snöggur enda áttu
Skallagrímur mjög erfitt með að stoppa hann í sókninni
Hann
gat skorað liggur við hvar sem er þegar hann vildi og hélt ég á
tímabili að hann myndi bara klára þetta fyrir Tindastólsmenn. En
sem betur fer var hann orðinn þreyttur í lokinn og hætti að
hitta.
Já svo hef ég verið mikið að
pæla að sækja um í Járnblendinu og prufa eitthvað nýtt. Hef
voða lítinn áhuga á að vinna þriðja sumarið í röð við að
klæða vegi en maður verður þreyttur á því að vera úti á landi
í 2 vikur og komast svo heim í 2 daga og aftur út í 2 vikur.
Enda langar mér að vera frekar að vera frekar að vera á
heimasvæði svona eitt sumar. Annas helgarfrí að nálgast og
ætli maður verði ekki að vinna á laugardaginn og fari svo
ekki heim á sunnudagin og mæti á svona eina basket í
Varmalandi enda verð ég örugglega drepinn ef ég mæti ekki
þessa helgi. En jæja ætli þetta sé ekki nóg í
bili